

200 tíma jógakennaranám


Ef hugurinn er kyrr verður allt svo miklu skýrara
Velkomin í 200 tíma jógakennaranám á vegum Amarayoga. Hérna á síðunni finnur þú allt kennsluefni sem þú þarft fyrir námið. Við anatómíu kennsluna nota ég bækurnar The Key Muscles of Hatha Yoga eftir Ray Long og Science of Yoga eftir Ann Swanson. Ég nota bækurnar í fyrirlestrunum, en það er alls ekki nauðsynlegt að kaupa þær. Annað kennsluefni er í pdf formi og þú finnur viðeigandi kafla við hvern fyrirlestur. Ef óskað er eftir því er hægt að kaupa heftin útprentuð, en prent hefur mikið hækkað svo við getum átt von á að þurfa að greiða í kringum 10.000.- kr fyrir hvert hefti.
Námið hefst laugardaginn 9. janúar með fundi á Zoom kl 10:00. Fundurinn verður ekki langur, en gerum ráð fyrir amk klukkutíma. Við ætlum bara aðeins að kynna okkur og fara yfir uppsetningu námsins. Þá verður opnað fyrir fyrsta hluta kennsluefnisins sem við svo förum yfir og ræðum á næsta Zoom fundi og svona höldum við áfram koll af kolli.
Gerið ráð fyrir að það taki tíma að hlusta á fyrirlestrana og ljúka við verkefnin sem fylgja þeim. Kosturinn við að hafa fyrirlestrana svo í upptökuformi er sá að við getum nýtt þann tíma fyrir námið sem hentar best okkar lífi og rútínu. Og það að geta hlustað aftur og aftur á sama fyrirlesturinn er sannarlega gagnlegt!
Við ætlum svo saman til Ítalíu í lokin! Við fljúgum til Nice 7. júní og þar bíður okkar rúta sem keyrir okkur upp í Ítölsku alpana. Þar dveljum við í viku á litlu hóteli sem heitir La Pace og er í smáþorpi í dalnum Valle Grana í Piemonte. Þarna er dásamleg kyrrð og náttúra. Við munum ganga í skógunum og hugleiða og fara yfir heimspekina í skógarrjóðrum, en svo höfum við ágætis rými til að æfa jógastöðurnar og kennsluna í Nais, sem er nýja lautarferðar aðstaða þorpsins.
Í gegnum námið höfum við Facebook hópinn til að skiptast á hugmyndum og fleira. Það er alltaf velkomið að tala beint við mig og ég hvet ykkur eindregið til þess að gera það ef þið viljið einhverja aðstoð, hvort sem er vegna asananna (jógastaðanna) eða annars. En endilega sendið mér þá póst á amarayoga@gmail.com og notið ekki Messenger forritið. Ég reyni að láta Messenger ekki trufla mig of mikið ;)
Allan tímann höfum við aðgang að alls konar jógatímum sem við getum ástundað þegar best stendur á, sem næst því daglega meðan á náminu stendur:
9. janúar 2027: Við hittumst á Zoom kl 10:00, kynnumst og opnum fyrsta kennslupakkann:
6. febrúar: Við förum yfir efni síðasta kennslupakka og opnum næsta:
13. mars: Við förum yfir efni síðasta kennslupakka og opnum næsta:
10. apríl: Við förum yfir efni síðasta kennslupakka og opnum næsta:
8. maí: Við förum yfir efni síðasta kennslupakka og opnum næsta:
7. júní höldum við svo af stað til Ítalíu! Við fljúgum til Nice og keyrum upp í Valle Grana þar sem við ástundum jóga, ræðum heimspekina og æfum kennsluna. Útskrift verður 13. júní og svo ferðumst við heim á leið daginn eftir.
.
Dagskrá á Ítalíu:
Mánudagur: ferðadagur
Þriðjudagur - Laugardagur:
8:00 Morgunmatur og nestispökkun
9:30 - 18:30 Ástundun, hugleiðsla, heimspekiumræður og æfingakennsla, allt meira og minna úti í sólinni í dásamlegri náttúrunni.
19:30 Kvöldmatur og ró
Sunnudagur: Útskrift og eitthvað skemmtilegt
Mánudagur: Ferðadagur
Allan tímann í gegnum námið ástundið þið jóga samviskusamlega. Hérna fyrir neðan finnið þið skjal sem þið prentið út og skráið á alla tíma sem þið takið. Tímarnir eiga að verða 85 - 100!! Ég fæ svo skjalið hjá ykkur í lokin. Ég treysti ykkur til þess að svindla ekki, því ef þið svindlið á mér eruð þið líka að svindla á ykkur sjálfum!