

Opnir tímar haust 2026
Tímarnir fara fram að Helluhrauni 16, Hafnarfirði. Skráning fer fram gegnum amarayoga@gmail.com


Eftir fyrsta mánuð haustsins erum við komin í rútínu og ljóst hvaða tímar fá að vera inni í töflunni okkar. Það er ekki lengur þörf á að skrá sig í ákveðna tíma, þú mætir bara þegar þig lystir. Hérna er tímataflan og fyrir neðan hana finnurðu verðið.


VERÐSKRÁ:
Ótakmörkuð mæting í 4 vikur kr 20.000.-
10x kort sem gildir allan veturinn kr. 24.000.-
Stakur tími kr 3.000.-
Viltu prófa tíma áður en þú fjárfestir í heilsunni? Það er velkomið! Komdu bara og prófaðu.
Endilega lestu vel reglurnar og skilmálana hérna neðst á síðunni, því við kaup á korti telstu hafa samþykkt allt sem kemur þar fram
Amarayoga er þjónustuaðili hjá VIRK Starfsendurhæfingasjóði.
Almennar reglur
Við kaup á námskeiði teljast eftirfarandi reglur samþykktar:
- Eftir að við höfum lagt dýnuna okkar á gólfið í salnum markar hún okkar rými. Við gætum þess að stíga ekki á annarra manna dýnur.
- Enginn á ákveðið pláss á gólfinu fyrir dýnuna sína og það sama á við í búningsklefanum.
- Virðum kyrrðina í salnum og höfum hljótt fyrir upphaf og eftir lok tíma. Það er sjálfsagt að spjalla saman fyrir utan salinn.
- Margir eiga við ofnæmi að stríða og hreint loft ætti að vera sjálfsagður hlutur þar sem við ræktum líkamann. Vinsamlega virðið aðra þátttakendur og forðist að mæta í tíma með ilmefni á líkamanum. Mætum einnig hrein og í hreinum fötum til að forðast sterka líkamslykt.
Skilmálar
Við kaup á námskeiði teljast eftirfarandi skilmálar samþykktir:
- Þátttakendur gera æfingarnar á eigin ábyrgð. Tímarnir eru rólegir og geta varla talist hættulegir, en hver og einn verður að bera fulla ábyrgð á eigin líkama.
- Athugið að námskeið eru ekki endurgreidd. Rýmið er takmarkað og þegar maður hefur fest sér pláss á námskeiði eru líkur á að einhver annar hafi ekki fengið pláss.
- Engin ábyrgð er borin á verðmætum og alltaf best að koma með sem minnst af slíku með sér í tíma.
Kennari: Ásta María Þórarins M.A. E-RYT500
"Ég fór i fyrsta jógatímann minn í kringum 1980 og fór svo í kennaranám 1999. Jóga var augljóslega mín köllun og ég hef kennt alla tíð síðan. Ég hef líka alltaf haldið áfram að grípa öll tækifæri til að læra meira.
Ég er skráður E-RYT500 tíma kennari hjá Yoga Alliance og Jógakennarafélagi Íslands.
Fyrir mér snýst jóga um að kyrra hugann. Allt annað er aukaatriði. Mögulega endum við með sterkan og lipran líkama, en ef hugurinn og tilfinningarnar eru ekki í ró erum við ekki vel sett. Jóga, gert á réttan hátt, kyrrir hugann og allt verður miklu auðveldara."
