top of page

Framhaldsnám og námskeið

Hér að neðan finnur þú námskeið sem standa öllum til boða. Ef þú hefur lokið 200 tíma jógakennara-námi geturðu nýtt þér þekkinguna sem þú færð með þessum námskeiðum við kennsluna. Ef þú ert ekki jógakennari geta námskeiðin mögulega nýst þér persónulega.

Yoga Alliance fer fram á að félagsmenn taki framhalds- eða endurmenntunarnámskeið reglulega (CEU eða Continuing Educational Units). Þeir sem hafa leyfi til að veita þessa kennslu eru skráir sem YACEP (Yoga Alliance Continuin Education Provider) hjá YA. Námskeiðin hér að neðan gefa þessar endurmenntunareiningar.

Ef þú stefnir á 300 tíma framhaldsnám seturðu saman námskeiðin hér að neðan þar til þú hefur lokið 300 tímum. Námið er samþykkt af Yoga Alliance (www.yogaalliance.org) og Jógakennarafélagi Íslands (www.jogakennari.is).

YACEP (2).png
RYS300.png

Ayurveda og jóga (60 stundir) 

Hefst 5. september 2026 með opnun á kennsluvef

Jóga og ayurveda.png

Í þessum hluta skoðum við hin fornu fræði ayurveda og hvaða hugsun liggur að baki þeim. Við skoðum hvernig ayurveda skiptir fólki upp í mismunandi líkamsgerðir og hvernig mismunandi líkamsgerðir þurfa mismunandi lífsstíl, mataræði og annað. Mismunandi líkamsgerðir þurfa líka mismunandi nálgun á jóga. Við skoðum þetta forna, heildræna kerfi, skoðum sögu þess og hvað við getum nýtt okkur af viskunni í dag. Við æfum okkur svo í að setja upp tíma fyrir hinar mismunandi líkamsgerðir, vata, pitta og kapha.

Ásta María Þórarinsdóttir, E-RYT500, YACEP og ayurveda lífsstílslráðgjafi frá American Institute of Vedic Studies, kennir grunn ayurveda fræðanna og hvernig mismunandi jóga hentar mismunandi líkamsgerðum. 

Íris Thorlacius Hauksdóttir, JKFÍ-RYT-500, líffræðingur og jógakennari, mun fara vel yfir starfsemi meltingarkerfisins.

Námið hefst 4. september 2026, með kynningu á Zoom og opnun á kennsluvef. Við eigum 3 helgar saman í sal og kennslu lýkur 18. október 2026.​

Síðasti skráningardagur er föstudagurinn 28. ágúst 2026.

Verð kr. 120.000.-​ 

Þar af er skráningargjald - óafturkræft - kr. 15.000.- og skal lokagreiðsla berst fyrir síðasta skráningardag.

 

ATH að einungis verða teknir inn 12 nemar!

Skráning fer fram gegnum amarayoga@gmail.com.

Agama tantra - leið möntrunnar (60 stundir) 

Hefst 24. október 2026 með opnun á kennsluvef.

Leið möntrunnar.png

Hér er á ferðinni námskeið um hefðir Indverja á tímabilinu í kringum 400-1200. Á því tímabili komu margar nýjar hugmyndir inn í heim jógans. Ritin sem geyma lýsingar hefðanna eru ýmist kölluð töntrur, agömur eða söfnin (samhitas).

Á þessu námskeiði skoðum við þessar hugmyndir og hvernig þær hefur þróast til dagsins í dag og hvernig við getum nýtt okkur þessa gömlu hefð í jógatímum.

Kennari er Ásta María Þórarinsdóttir, E-RYT500, YACEP. 

Námið hefst 24. október 2026, með kynningu á Zoom og opnun á kennsluvef. Við eigum 3 helgar saman í sal og námi lýkur 6. desember 2026.​​

Síðasti skráningardagur er föstudagurinn 17. október 2026.​​

Verð kr. 120.000.-​ 

Þar af er skráningargjald - óafturkræft - kr. 15.000.- og skal lokagreiðsla berast fyrir síðasta skráningardag.

 

ATH að einungis verða teknir inn 12 nemar!

Skráning fer fram gegnum amarayoga@gmail.com.

Amara nídra (60 stundir) 

Hefst 9. janúar 2027 með opnun á kennsluvef.

Amara nidra.png

Fyrir jógakennara og aðra fagaðila sem vinna með fólki. 

Jóga nídra er mögnuð aðferð til að hjálpa fólki við að ná djúpri slökun. Í þessu ástandi, milli svefns og vöku, er svo mögulegt að vinna með allskonar hluti sem geta verið að plaga fólk, svo sem streitu, óöryggi og ýmislegt annað, smærra og stærra. Þar fyrir utan eru tímarnir bara yndisleg slökun og góð leið til að hjálpa fólki við að ná góðum nætursvefni.

Kennari er Ásta María Þórarinsdóttir, E-RYT500, YACEP.

Íris Thorlacius Hauksdóttir, JKFÍ-RYT-500, líffræðingur og jógakennari, mun fara yfir líffræði svefnisins.

Námið hefst 9. janúar 2027 með kynningu á Zoom og opnun á kennsluvef. Við eigum 3 helgar saman í sal og námi líkur 14. febrúar 2027.

Síðast skráningardagur er 6. janúar 2027.

Verð kr 122.000.-

Þar af er skráningargjald - óafturkræft - kr. 15.000.- og skal lokagreiðsla berast fyrir síðasta skráningardag.

ATH að einungis verða teknir inn 12 nemar!

Skráning fer fram gegnum amarayoga@gmail.com.

Fíngerði líkaminn (60 stundir) 

Hefst 27 febrúar 2027 með opnun á kennsluvef.

Fíngerði líkaminn.png

Á þessu námskeiði skoðum við hvaðan orkulíkaminn er kominn til okkar og hvernig hann hefur þróast í gegnum tíðina. Við skoðum svo hvernig hann tók tvær mismunandi stefnur, annars vegar þessa sem gaf okkur orkustöðvarnar eins og við þekkjum þær og notum í dag og svo hins vegar hvernig þær birtast heilurum og hvernig unnið er með þær í heilun.

Við skoðum málið ekki bara utan frá heldur lærum líka aðferðir við að nýta okkur orkulíkamann á þennan tvenna hátt. 

 

Kennari er Ásta María Þórarinsdóttir, E-RYT500, YACEP. 

Námið hefst 27. febrúar 2027, með kynningu á Zoom og opnun á kennsluvef. Við eigum 3 helgar saman í sal og námi lýkur 4. apríl 2027.​​

Síðasti skráningardagur er föstudagurinn 19. febrúar 2027.​​

Verð kr. 122.000.-​ 

Þar af er skráningargjald - óafturkræft - kr. 15.000.- og skal lokagreiðsla berast fyrir síðasta skráningardag.

 

ATH að einungis verða teknir inn 12 nemar!

Skráning fer fram gegnum amarayoga@gmail.com.

Anatómía og kennslutækni (60 stundir)

Dagsetningar ekki komnar, en skráðu þig á póstlista gegnum amarayoga@gmail.com og þú færð upplýsingar þegar þær koma.

Anatómía.png

Á þessu námskeiði skoðum við jógaæfingarnar út frá anatómíu líkamans. Við skoðum algeng meiðsli, bæði þau sem geta orðið í jógaástundun og þau sem nemendur koma með til okkar. Við skoðum hvernig má aðlaga jógastöður að mismunandi líkömum ofl.

Og að lokum æfum við kennslutækni. Við skoðum hvernig fólk lærir á mismunandi hátt og hvernig við nálgumst mismunandi gerðir af nemendum. Við æfum okkur í að setja saman tíma, vinnustofur og lengri námskeið. Við skoðum mismunandi kennslustíla og athugum hvað við þurfum að hafa í huga ef við kennum einkatíma (maður á mann). Við skoðum flóknari asönur og hvernig við getum kennt þær. Og við æfum okkur í að aðstoða og leiðrétta, bæði með orðum og höndum.

Kennarar eru Ásta María Þórarinsdóttir, E-RYT500, YACEP, Rakel Dögg Sigurgeirsdóttir, sjúkraþjálfari og jógakennari, og Íris Thorlacius Hauksdóttir, JKFÍ-RYT-500, líffræðingur og jógakennari.

​Nánari lýsing þegar nær dregur.

Saga og heimspeki (30 stundir) 

Dagsetningar ekki komnar, en skráðu þig á póstlista gegnum amarayoga@gmail.com og þú færð upplýsingar þegar þær koma.

Jóga saga og heimspeki.png

Fyrir jógakennara og aðra áhugasama. 

Þetta námskeið fer fram í gegnum netið:

Við skoðum sögu jóga frá því elstu heimildir birtast og til tíma hatha yoga. Á leiðinni förum við yfir helstu hugmyndafræði og heimspeki og sjáum hvernig hún breyttist með tímanum.Við kynnumst Vedunum lítilsháttar og skoðum valda kafla úr Upanishad ritunum og Bhagavad Gita.  Við skoðum vel eitt þekktasta rit innan jógaheimsins, Jógasútrur Patanjalis, og við kynnumst Shankaracharya og hefðinni sem kennd er við hann, Advaita Vedanta. 

Asana (30 stundir) 

Dagsetningar ekki komnar, en skráðu þig á póstlista gegnum amarayoga@gmail.com og þú færð upplýsingar þegar þær koma.

ana (1).png

Fyrir jógakennara og aðra áhugasama. 

Þetta námskeið fer fram í gegnum netið:

Við skoðum sögu jóga frá því fyrstu heimildir um Hatha Yoga koma fram og hvernig hugmyndir manna um líkamann og hvað honum er fyrir bestu hafa þróast og breyst á þessum um það bil 800 árum sem hafa liðið síðan. 

©2012 Amarayoga. Allur réttur áskilinn

Amarayoga

Helluhraun 16-18, 220 Hafnarfjörður

Netfang: amarayoga@gmail.com

  • Facebook Clean Grey
  • Instagram
bottom of page