top of page

Nánar um Sögu og heimspeki

Fyrir jógakennara og aðra áhugasama

images.jpeg

Þetta námskeið fer alfarið fram í gegnum netið. Við förum yfir sögu og heimspeki jóga frá gömlu Rig Veda ritunum og allt að upphafi hatha yoga. Við skoðum tvö þekktustu ritin vel, Bhagavad Gita og Jógasútrur Patanjalís, en skoðum einnig valda kafla úr Rig Veda og Upanishad. Við skoðum Mimamsa heimpekina, Samkhya heimspekina, Jógaspekina og Advaita Vedanta. Við rennum í leiðinn yfir söguna frá um það bil 1500 fyrir okkar tímatal og til ársins 1000. Þetta er stórt og mikið efni sem aldrei næst að klára, en við náum vonandi að gefa nokkuð góða mynd af því.

Skipulag

 

Laugardagur 11. apríl 2026 kl 12:30: Stuttur fundur á Zoom þar sem við kynnumst og förum yfir uppsetningu námsins. Við skoðum hvernig kennsluefnið er sett upp í fyrirfram uppteknum fyrirlestrum sem er hægt að horfa á aftur og aftur meðan á náminu stendur og í 6 mánuði eftir að því líkur. Við kveðjumst og hvert og eitt hellir sér í námsefnið. Það er hægt að nota helgina vel, eða hlusta yfir alla vikuna.

25. apríl 2026 hittumst við á Zoom kl 12:30. Við gerum ráð fyrir einum eða tveimur tímum þar sem við förum yfir efni fyrirlestranna sem við hlustuðum á síðustu tvær vikur í formi spurninga og svara. Við opnum svo seinni hluta kennsluvefsins.

9. maí 2026 hittumst við svo í síðasta sinn á Zoom og förum yfir seinni hluta kennsluefnisins. Við gefum okkur tíma fyrir spurningar og svör og endum svo samveruna okkar. Þau sem stefna á 300 tíma framhaldsnám þurfa að skila inn 2 litlum verkefnum. Staðfestingar á þátttöku / skírteini verða send út á PDF formi.

manu.jpeg

Verð kr. 35.000.-​ skal greiða við skráningu.

Skráning fer fram gegnum amarayoga@gmail.com.

​Síðasti skráningardagur er föstudagurinn 10. apríl.

Þetta námskeið telst sem CE einingar hjá Yoga Alliance (30st) og er einnig hluti af 300 tíma framhaldsnámi Amarayoga. 

​Kennari: Ásta María Þórarinsdóttir, E-RYT500 

374969108_268387536146893_4708800312760759597_n.jpg

©2012 Amarayoga. Allur réttur áskilinn

Amarayoga

Helluhraun 16-18, 220 Hafnarfjörður

Netfang: amarayoga@gmail.com

  • Facebook Clean Grey
  • Instagram
bottom of page