

Nánar um Jóga og Ayurveda
Fyrir jógakennara og aðra fagaðila

Við erum ekki öll steypt í sama mót. Þetta hefur lífsviskan, ayurveda, vitað og haft að leiðarljósi frá upphafi. Á vesturlöndum höfum við lengst af unnið út frá því að það sem er holt og gott fyrir einn hljóti að vera holt og gott fyrir alla. Gefnar eru út ráðleggingar um mataræði, líkamsrækt, svefn og annað, eins og það sama eigi við um alla. En þau okkar sem hafa einhvern tíma ræktað blóm vita að þau þurfa ekki öll sams konar umönnun til að þrífast vel. Við getum ekki sett kaktur og kólus saman í pott og vökvað þau svo bara einhvern vegin. Við getum ekki einu sinni fundið út meðal vatnsþörfina þeirra og haldið þeim á lífi með því að vökva nákvæmlega samkvæmt meðaltalinu. Hvers vegna ætti því að vera farið á annan hátt hjá okkur mannfólkinu?
Á þessu námskeiði skoðum við hvernig við fólkið erum fjölbreytt og mismunandi og hvernig við höfum ekki alltaf á því sama að halda. Við lærum að greina okkur niður í "týpur" samhvæmt fræðum ayurveda og hvernig hver týpa þrýfst best.
Til að útskrifast með skírteini þarf að hafa lokið 200 tíma grunnámi fyrir jógakennara og að leiða einn tíma af jóga fyrir hópinn, sérsniðinn af einni líkamstýpu. Aðrir fá skjal sem staðfestir þátttöku.
Skipulag
Laugardagur 3. október 2026 kl 10:00: Stuttur fundur á Zoom þar sem við kynnumst og förum yfir skipulag námsins. Kennsluvefurinn verður kynntur þar sem við höfum fyrirfram upptekna fyrirlestra og efni þeirra á PDF formi. Efnið í þessum pakka er kynning á ayurveda fræðunum. Við ræðum um mismunandi líkamstýpur og hvernig við getum fundið út hvaða týpu við tilheyrum. Við förum yfir hvernig lífsstíll hentar hverri týpu, hvernig starf hentar týpunum, hvaða mataræði hentar best, og þar fram eftir götunum. Við förum yfir hvara áhrif tímabil dagsins hafa á hverja týpu og á sama hátt skoðum við tímabil ársins. Við lærum ýmislegt sem við getum nýtt okkur til að hafa það almennt betra.
Við skoðum líka sögu ayurveda og upprunann, förum yfir hvað er satt af því sem sagt er um það efni og hvað ekki.
Þessa fyrirlestra má hlusta á aftur og aftur meðan á náminu stendur.
Við hittumst svo að Helluhrauni 16:
17. - 18. október 2026 - Íris Thorlacius Hauksdóttir, líffræðingur og jógakennari, segir okkur ýmislegt um meltingakerfið og hvernig við vinnum næringuna úr matnum.
Við skoðum hugmyndir ayurveda um sama efni, hvernig menn sáu fyrir sér hið forna að líkaminn nýti efnin úr matnum.
Við vinnum saman 2 og 2 og sjáum hvort við getum greint hvort annað í týpu og gefið ráð í framhaldinu.
31. október - 1. nóvember 2026 - Núna er komið að því að skoða hvernig við getum nýtt okkur þessa vitneskju þegar kemur að jóga. Getum við sér fyrir okkur að mismunandi manngerðir sæki í mismunandi jógatíma og gætum við séð fyrir okkur hvaða tímar gera hverri týpu mesta gagn? En þegar kemur að pranayama? Hugleiðslu?
Við lærum að setja saman tíma með þarfir hverra týpu í huga og vinnum saman í hópum til að útbúa slíka tíma.
14. - 15 nóvember 2026 - Lokahelgin. Hérna ræðum við allt sem við höfum farið í gegnum og æfum okkur í að leiða tíma.
Kennt er kl 11:30-18:00 á laugardögunum og kl 09:00-15:30 á sunnudögunum.


Verð kr. 115.000.- og skal greitt við skráningu. Síðasti skráningardagur er föstudagur 25. september 2026. ATH að einungis verða teknir inn 12 nemar!
Skráning fer fram gegnum amarayoga@gmail.com.
Þetta námskeið telst sem CE einingar hjá Yoga Alliance (60st) og er einnig hluti af 300 tíma framhaldsnámi Amarayoga.
Kennarar: Ásta María Þórarinsdóttir, E-RYT500, og Íris Thorlacius Hauksdóttir, líffræðingur og CYT500.

