top of page
Jogastudio

Einn andardrátt í einu.....

Opnir jógatímar

Viltu mýkja og styrkja líkamann á rólegan hátt, einn andardrátt í einu? Ertu svo heppin eða heppinn að vera stundum laus fyrir hádegi? Fjóra morgna vikunnar, kl 10:30, má finna mjúka og rólega jógatíma sem henta lang flestum, byrjendum jafnt sem sem lengra komnum. Markmiðið með tímunum er að mýkja og styrkja líkamann með fulla athygli við hreyfinguna og andardráttinn. Þannig náum við athyglinni frá áreitinu sem stöðugt herjar á okkur.

Það er alltaf hægt að mæta í frían prufutíma og sjá svo til. Þú mætir bara 5 mín fyrir tímann, engin skráning og ekkert vesen. Það er líka velkomið að hafa samband gegnum amarayoga@gmail.com fyrir meiri upplýsingar.

Viltu frekar vera með í lokuðum hóp?

Stundum er gott að vera í lokuðum hóp sem hittist alltaf á sama tíma yfir ákveðið tímabil. Þetta geta verið svipaðir tímar og í opnu tímunum, en kanski er eitthvað ákveðið efni tekið fyrir á svona námskeiðum. Núna á þriðjudaginn 16. september fer nýr hópur af stað í hádeginu á þriðjudögum og fimmtudögum. Hérna finnurðu upplýsingar um námskeiðin:​​

200 klukkustunda jógakennaranám

 

Amarayoga er jógaskóli, eða akademía, sem útskrifar jógakennara með alþjóðleg réttindi. Amarayoga er stoltur meðlimur í Jógakennarafélagi Íslands, sem heldur utanum skólana hér á landi og sér um að þeir uppfylli lágmarks kröfur til námsins. Amarayoga er einnig skráð hjá og samþykkt af Yoga Alliance of America, sem er alþjóðlega samþykkt vottunarfélag. Þeir skólar sem eru á skrá hjá þeim geta útskrifað kennara sem hafa möguleika á að skrá sig hjá YA og það auðveldar alla alþjóðlega vinnu. Hérna finnurðu allt um 200 tíma námið:

300 klukkustunda framhaldsnám fyrir jógakennara og styttri endurmenntunarnámskeið 

 

Kannski hefurðu nú þegar klárað 200 tíma jógakennaranám og langar að bæta við þig þekkingu.  Amarayoga býður upp á 300 tíma framhaldsnám, sem er einnig viðurkennt bæði af Jógakennarafélagi Íslands og Yoga Alliance. Þeir jógakennarar sem eru á skrá hjá Yoga Alliance þurfa að uppfylla ákveðið margar einingar af endurmenntun á þriggja ára fresti. Þessi námskeið hjá Amarayoga gilda sem endurmenntun, en þau eru einnig hluti af framhaldsnámi Amarayoga.

Þessi námskeið eru líka bæði gagnleg og fróðleg, hvort sem þú stefnir á framhaldsnám og skráningu hjá YA eða ekki. Hérna finnurðu allt um þessi námskeið og framhaldsnámið:​​

​​​

ANDA - LIFA - NJÓTA 

Heilsuferðir á vegum Amarayoga

Stundum er bara nauðsynlegt að kúpla sig aðeins út og skipta um umhverfi. Hverfa út úr ys og þys hversdagsins hérna heima og endurnýja sig aðeins. Og jafnvel þó það sé kannski ekki alveg nauðsynlegt, þá er það að minnsta kosti alveg yndislegt.

Ferðaklúbburinn okkar, ANDA - LIFA - NJÓTA, hefur nú farið eina ferð til hinnar dásamlegu ítölsku Occitaníu. Ferðin heppnaðist ótrúlega vel og Íslendingarnir lifðu eins og blóm í eggi, einu ferðamennirnir í bænum.

Við höldum áfram, förum aftur til Occitaníu sumarið 2026 og svo bætast mögulega fleiri áfangastaðir við. Hérna finnurðu allt um ferðina:

joga_islands_edited.jpg

Amarayoga er stolltur meðlimur í Jógakennarafélagi Íslands og Yoga Alliance. Skólinn hefur réttindi frá JKFÍ og YA til að útskrifa nemendur bæði með 200 tíma grunnnám og 300 tíma framhaldsnám. YA hefur einnig veitt skólanum leyfi til að sjá um endurmenntun á vegum félagsins. 

Ásta María Þórarinsdóttir

 

Manneskjan á bak við Amarayoga er Ásta María Þórarinsdóttir, málvísindamanneskja sem gerðist jógakennari að fullu starfi. Jógað tók smám saman yfir og á endanum varð ljóst að best væri að öll athyglin beindist að jóga (og börnunum, heimilinu og hundunum) og hún lauk sínu fyrsta jógakennaranámi um síðustu aldamót. Eftir rúman áratug af kennslureynslu kom svo að því að útskrifa kennara. Í dag er Ásta María sjóaður kennari með hæstu skráningu frá Yoga Alliance, E-RYT500. Hún hefur leyfi til að kenna 200 tíma grunnnám sem og 300 tíma framhaldsnám, samþykkt af Yoga Alliance og Jógakennarafélagi Íslands. Hún hefur einnig leyfi til að veita styttri endurmenntunarnámskeið (CEU) sem eru samþykkt af alþjóðasamtökunum Yoga Alliance.

Ásta María Þórarins M.A. E-RYT500    
 

"Ég fór i fyrsta jógatímann minn í kringum 1980 og fór svo í kennaranám 1999. Jóga var augljóslega mín köllun og ég hef kennt alla tíð síðan. Ég hef líka alltaf haldið áfram að grípa öll tækifæri til að læra meira.  

Ég er skráður E-RYT500 tíma kennari hjá Yoga Alliance og Jógakennarafélagi Íslands.

Fyrir mér snýst jóga um að kyrra hugann. Allt annað er aukaatriði. Mögulega endum við með sterkan og lipran líkama, en ef hugurinn og tilfinningarnar eru ekki í ró erum við ekki vel sett.  Jóga, gert á réttan hátt, kyrrir hugann og allt verður miklu auðveldara. 

Með aldrinum finn ég þó betur og betur hvað jógaæfingarnar eru mikilvægar fyrir heilsu líkamans. Ég er þakklát fyrir að hafa snemma lært þessa aðferð til að halda líkamanum í sem besta formi sem allra lengst.

Á þessum rúmlega tveimur áratugum sem ég hef verið að leiða fólk gegnum jóga hef ég þróað eigin flæði og eigin áherslur. Ég kalla flæðið mitt Amaraflæði - hið eilífa flæði. Þó þetta flæði sé mitt, er það líka þitt og okkar allra."

374969108_268387536146893_4708800312760759597_n.jpg

©2012 Amarayoga. Allur réttur áskilinn

Amarayoga

Helluhraun 16-18, 220 Hafnarfjörður

Netfang: amarayoga@gmail.com

  • Facebook Clean Grey
  • Instagram
bottom of page