top of page

ANDA - LIFA - NJÓTA 
 
- eitt skref í einu... 

​Stundum er bara nauðsynlegt að kúpla sig aðeins út og skipta um umhverfi. Hverfa út úr ys og þys hversdagsins hérna heima og endurnýja sig aðeins. Og jafnvel þó það sé kannski ekki alveg nauðsynlegt, þá er það að minnsta kosti alveg yndislegt.

​

Ferðaklúbburinn okkar, ANDA - LIFA - NJÓTA, hefur nú farið þrjár ferðir til hinnar dásamlegu ítölsku Occitaníu. Þessar ferðir heppnuðust ótrúlega vel og Íslendingarnir lifðu eins og blóm í eggi, einu ferðamennirnir í bænum.

​

Við höldum áfram sumarið 2027 og förum þrjár ferðir:

20 maí - 27 maí - Dásamlegu fjöllin í ítölsku Occitaníu með mögulegum aukadögum í Nice

31 maí - 7 júní - Sjö dagar í Rauða kastalanum rétt hjá Saluzzo. Hérna er bara dekur! Þessa ferð verðum við að festa fyrir 20. október!

22 júlí - 29 júlí - Dásamlegu fjöllin í ítölsku Occitaníu með mögulegum aukadögum í Nice, við sjáum hvað okkur langar að gera þarna í lokin.

​​​​​

NÝTT!

​

31.maí - 7. júní 2027

​

Allar prinsessur þurfa að hvíla sig!

Við ætlum að dvelja í 7 daga í hinum misterioso Castello Rosso rétt við Saluzzo....

Þar ætlum við að taka það ALVEG rólega. Við verðum í hálfu fæði, borðum morgun- og kvöldverð í kastalanum, en finnum okkur eitthvað í hádeginu einhversstaðar í miðaldarbænum Costigliole. Eftir morgunverðinn tökum við mjúkan og góðan jógatíma einhvers staðar í kastalagarðinum - samt alls ekki of snemma! - og svo getum við slakað á sundlaugarbakkanum, fengið nudd í spa-inu eða röllt um sveitina í kring, eða skoðað bæinn, eða tekið strætó til borgarinnar, Saluzzo, eða bara gert nákvæmlega ekkert annað en að vera prinsessur. Við höfum svo annan jógatíma í boði um kl 17:00 og borðum svo saman um kvöldið.

 

Við ætlum að koma heim eins og nýslegnir túskildingar! 

​

Við erum að stefna á að fljúga út mánudaginn 31 maí og koma til baka viku síðar, eða 7 júní. Að sjálfsögðu getur hver og einn svo framlengt dvölinni í Nice. Við þurfum að festa þessa ferð fyrir 20. október vegna þess að kastalinn er eftirsóttur og hefur aðeins 12 gistirými. Verðið (fyrir utan flugið) er 200.000.- ef þú velur tveggja manna herbergi en um 245.000.- ef þú vilt einkaherbergi. Endilega hafðu samband á amarayoga@gmail.com ef þú vilt skrá þig eða fá frekari upplýsingar.

 

​

IMG_1155.HEIC
IMG_1147.HEIC
IMG_2158 2.jpeg
459255357_1130562228744301_534523998922672859_n.jpg
IMG_6272.jpeg

FJÖLLIN 

​

20 maí - 27 maí 2027

og

22 júlí - 29. júlí 2027

​

Árin 2025 og 2026 fór Amarayoga með hópa til dásamlegu ítölsku Occitaníu. Ferðirnar voru ótrúlega nærandi og skemmtilegar! Við dvöldum með fjallabúum, í litlu þorpi í hlíðinni, gengum saman upp um fjöll og fyrnindi og mýktum okkur með jóga inn á milli! Við vorum 12 í hóp, þannig að allir náðu að kynnast og við gátum alltaf setið saman við eitt borð sem gerði ferðina einstaka og skemmtilega.

​

Ferðirnar sumarið 2025 og 2026 seldust upp á skömmum tíma og við stefnum á fleiri ferðir vor og sumar 2027, 20. maí og svo aftur 22. júlí. ​​Við ætlum að eiga viku saman í fjöllunum, í einföldu lífi, án áreitis. Við dveljum í litlu þorpi sem heitir Pradleves, á litlu gistiheimili sem heitir La Pace (Friðurinn). Þetta gistiheimili hefur verið rekið af sömu fjölskyldu í nærri 100 ár! Við verðum í hálfu fæði á gistiheimilinu sem verslar ekki inn nein aðföng í yfir kílómeters fjarlægð. Allt hráefni er því ferskt úr héraði og það finnst á bragðinu. Við fáum svo nesti með okkur í gönguferðirnar og einn daginn förum við á smá matreiðslunámskeið þar sem við borðum útkomuna, þannig að við erum í raun í fullu fæði.

​Hitastigið á svæðinu yfir hásumar er mjög þægilegt, oftast í kringum 25 gráður yfir hádegið.

 

Dagskráin lítur nokkurn veginn svona út:​

​

Alla daga göngum við í gegnum skóga og/eða á fjöll. Við göngum u.þ.b. 5-12 km á dag og mesta hækkun verður 440 metrar. Við heimsækjum líka hana Alessöndru í litla þorpið hennar, San Pietro og lærum að elda eitthvað sniðugt.  

​

Alla dagana byrjum við á morgunverði hjá henni Cinziu okkar sem svo nestar okkur fyrir daginn. Við leggjum af stað út í ævintýrin rétt fyrir kl 9:00. Eftir að við komum til baka hittumst við í Nais, sem er lautarferðagarður bæjarins og þar skolum við tærnar í ánni og teygjum á okkur með jóga. Kvöldmaturinn er svo klukkan 19:30, og þar sem við borðum svo mikið hjá henni Cinziu náum við ekki að gera mikið eftir matinn!

​

Verð fyrir utan flug:

​

Á mann í tveggja manna herbergi: 232.000.-

Á mann í einstaklingsherbergi: 243.000.-

​

Innifalið í verði: Akstur frá Nice og upp í fjöllin. Allur akstur inn svæðisins. Akstur til baka til Nice. Gisting á La Pace, morgunmatur, nesti í hádeginu og kvöldverður. Jógatímar og leiðsögn í fjallgöngunum. Hrikalega skemmtilegur félagsskapur, kyrrð og dásamleg náttúra.​​​

​​​

Allt skipulag, undirbúningur, utanumhald, hópstjórn og jógakennsla er í höndum Ástu Maríu. Alessandra hjálpar okkur á milli staða og leiðsegir í fjallagöngunum. Cinzia í La Pace sér um að allir fái nóg að borða. 

​

Svo er möguleiki á að enda ferðirnar á frönsku rivierunni þar sem sólin og sjórinn leika við fólk eftir göngurnar.

​

Athugið að við göngum að jafnaði 10 km á dag, stundum styttri leiðir og stundum lengri. Við göngum í fjöllunum, svo gangan getur tekið smá í fótinn. En við göngum bara eitt skref í einu svo ef við erum í þokkalegu formi er þetta ekkert vandamál.  ​

 

Hafðu samband gegnum amarayoga@gmail.com ef þú vilt tryggja þér pláss eða fá frekari upplýsingar. 

 

​

Þú finnur okkur á Instagram @ANDALIFANJOTA

Og hérna er hlekkurinn á Facebook síðuna, ANDA - LIFA - NJÓTA:

  • Facebook Clean Grey

©2012 Amarayoga. Allur réttur áskilinn

Amarayoga

Helluhraun 16-18, 220 Hafnarfjörður

Netfang: amarayoga@gmail.com

  • Facebook Clean Grey
  • Instagram
bottom of page