top of page

200 tíma nám í 4 lotum

Veturinn 2026-2027 fer 200 tíma jógakennaranámið fram í 4 lotum. Hægt er að taka þátt í öllum lotunum og enda með réttindi sem jógakennari, en það er einnig hægt að velja eina eða fleiri lotur ef áhugi er á efninu sem tekið er fyrir. Jógakennarar sem hafa útskrifast nú þegar gætu líka valið að taka eina eða tvær lotur til upprifjunar eða til að læra ákveðið efni út frá nýju sjónarhorni. Hver lota er kennd yfir 2 helgar á staðnum en talsvert efni fylgir með í gegnum vefinn.

Lota 1: Allt um jóga í framkvæmd. Hérna lærum við allar 50 mikilvægustu jógastöðurnar vel, lærum um hugleiðslu, jóga nídra, orkulíkamann (orksustöðvar og rásir), möntrur og alls konar skemmtilegt.

Þessi lota fer fram í september 2026.

Lota 2: Jógaanatómía. Hérna lærum við alls konar um líkamann, um stoðkerfið, taugakerfið, hjarta og æðakerfið og alls konar út frá jógaástundun. Við lærum hvernig við nálgumst jógastöðurnar (asana) út frá anatómíu líkamans, svo æfingarnar þjóni líkamanum sem best. Við lærum hvernig við getum aðlagað stöðurnar að mismunandi hópum, og fleira. 

Þessi lota fer fram í nóvember 2026.

Lota 3: Allt um sögu og heimspeki jóga. Hvaðan er þetta allt saman komið og hver var hugsunin á bak við kerfið? Hvernig hefur kerfið breyst í gegnum tíðina?

Þessi lota fer fram í janúar 2027.

Lota 4: Þessi lota er sérstaklega ætluð þeim sem stefna á útskrift sem jógakennarar. Hérna förum við í tæknilegu atriðin, eins og hvernig við setjum saman góðan jógatíma, við förum yfir ábyrgð jógakennarans og siðareglur, við förum yfir bókhald og skattskil og við æfum okkur í kennslu.

Þessi lota fer fram í mars 2027.

©2012 Amarayoga. Allur réttur áskilinn

Amarayoga

Helluhraun 16-18, 220 Hafnarfjörður

Netfang: amarayoga@gmail.com

  • Facebook Clean Grey
  • Instagram
bottom of page